PRENTÚTGÁFA
Útrás ehf
Verkfræðistofan Útrás ehf var stofnuð 1993 og erum við því 17 ára á þessu ári. 
Fyrstu árin var félagið fyrst og fremst í ráðgjafar- og hönnunarverkefnum á sviði vélaverkfræði, orkuverkfræði og skipaverkfræði.  Starfsemina útvíkkuðum við árið 2005 og samhliða verkfræðistofunni er nú rekin smiðja með höfuðáherslu á verktakastarfsemi í málmiðnaði.  Starfsmenn eru nú 15.
Við höfum komið að ýmsum virkjanaframkvæmdum, svo sem Kárahnjúkavirkjun, Reykjanesvirkjun, Hellisheiðarvirkjun og Lagarfljótsvirkjun.  Einnig höfum við tekið að okkur verkefni fyrir álverið á Reyðarfirði, Járnblendið á Grundartanga og nýja moltuverksmiðju í Eyjafirði.
Ýmis stálsmíði við nýja sundlaug í Hrísey, stækkun Glerártorgs á Akureyri, byggingu Hofs - menningarhúss á Akureyri, byggingu nýrrar Bónus-verslunar á Akureyri, stækkun Háskólans á Akureyri, byggingu Naustaskóla á Akureyri, byggingu íþróttahúss á Dalvík og byggingu þjónustuhúss við Akureyrarhöfn er unnin af okkur.

Myndasafn



Útrás - Verkfræðistofa | Sími 461 2920 og 461 2921| utras@nett.is          Útrás - Smiðja  | Sími 461 2911 | kk.utras@nett.is
Útrás - Verkfræðistofa | Sími 461 2920 og 461 2921| utras@nett.is          Útrás - Smiðja  | Sími 461 2911 | kk.utras@nett.is