Verkfræðistofan Útrás ehf var stofnuð 1993 og erum við því 19 ára á þessu ári. Fyrstu árin var félagið fyrst og fremst í ráðgjafar- og hönnunarverkefnum á sviði vélaverkfræði, orkuverkfræði og skipaverkfræði.  Starfsemina útvíkkuðum við árið 2005 og samhliða verkfræðistofunni er nú rekin smiðja með höfuðáherslu á verktakastarfsemi í málmiðnaði.  Starfsmenn eru nú 17.
 
Við höfum komið að ýmsum virkjanaframkvæmdum, svo sem Kárahnjúkavirkjun, Reykjanesvirkjun, Hellisheiðarvirkjun, Lagarfljótsvirkjun, Kröfluvirkjun og Laxárvirkjun.  Einnig höfum við tekið að okkur verkefni fyrir álverið á Reyðarfirði, Járnblendið á Grundartanga og nýja moltuverksmiðju í Eyjafirði.
 
Ýmis stálsmíði við nýja sundlaug í Hrísey, stækkun Glerártorgs á Akureyri, byggingu Hofs - menningarhúss á Akureyri, byggingu nýrrar Bónus-verslunar á Akureyri, stækkun Háskólans á Akureyri, byggingu Naustaskóla á Akureyri, byggingu íþróttahúss á Dalvík og byggingu þjónustuhúss við Akureyrarhöfn er unnin af okkur.